Skip to content

Keppnisárangur 2023

Stjórn Spretts og framkvæmdastjóri óskar eftir upplýsingum um árangur
Sprettara á íþróttamótum og gæðingamótum á árinu 2023.

Óskum eftir upplýsingum um árangur í öllum flokkum fyrir keppnisárið 2023,
barna, unglinga, ungmenna og fullorðinsflokkum, áhugamenn sérstaklega
verðlaunaðir.

Árangursupplýsingar eiga að sendast til [email protected] á
meðfylgjandi formi keppnisárangur 2023 fyrir fimmtudagin 26.október

Stjórn Spretts hefur farið yfir reglur og stigagjöf fyrir íþróttafólk
Spretts. Þetta eru reglur sem gilda fyrir árið 2023.

Eftirfarandi verðlaun verða veitt:

Besti keppnisárangur í barna, unglinga og ungmennaflokka bæði í stúlkna og
drengja flokkum.
Íþróttakarl Spretts – atvinnumaður
Íþróttakarl Spretts – áhugamaður
Íþróttakona Spretts – atvinnumaður
Íþróttakona Spretts – áhugamaður.

Verðlaun verða veitt í barna og unglingaflokki á uppskeruhátíð barna og unglinga 16.nóv í veislusal Spretts

Verðlaun í ungmenna og fullorðinsflokkum verða veitt á árshátíð Spretts 4.nóv í veislusal Spretts

Eftirtalin mót gefa stig:

Landsmót, Íslandsmót, öll WR mót, Gæðingakeppni Spretts
og Íþróttamót Spretts, öll opin íþróttamót og opin gæðingamót.

Meistaraflokks program, T1, V1, F1, T2 gefa 5 auka stig fyrir hvert sæti í
öllum flokkum.

Ákveðið hefur verið að HM verði bætt inn í stigagjöf sem gildi fyrir keppnisárangurinn 2023. 

Stigahæsti einstaklingurinn verður útnefndur íþróttakona/maður Spretts.

Opin Íþróttamót, opin Gæðingamót, öll opin mót innanhúss, hver grein gefur

neðagreind stig.
1. sæti 20 / 2. sæti 15 / 3. sæti 10 / 4. sæti 9 / 5. sæti 8
6. sæti 7 / 7. sæti 6 / 8. sæti 5 / 9. sæti 4 /10. sæti 3

Íþróttamót Spretts og Gæðingamót Spretts,
1. sæti 30 / 2. sæti 25 / 3. sæti 20 / 4. sæti 15 / 5. sæti 10
6. sæti 9 / 7. sæti 8 / 8. sæti 7 / 9. sæti 6 / 10. sæti 5

Öll WR mót og Áhugamannamót Íslands
1.sæti 50/ 2. Sæti 45/ 3. Sæti 40 / 4. Sæti 35 / 5. Sæti 30
6. sæti 25 / 7. Sæti 20 / 8. Sæti 15 / 9. Sæti 10 / 10. Sæti 5

Landsmót, Íslandsmót
1.sæti 150 / 2. Sæti 100 / 3. Sæti 50 / 4. Sæti 40 / 5. Sæti 35
6. sæti 30 / 7.sæti 25 / 8. Sæti 20 / 9. Sæti 15 / 10. Sæti 10

Skeiðgreinar
1. sæti 40 / 2. Sæti 35 / 3. sæti 30 / 4. Sæti 25 / 5. Sæti 20

Heimsmeistaramót  

1. Sæti 200 stig/ 2. Sæti 100 stig /3. Sæti 50 stig /4. Sæti 40 stig/5. Sæti 35 stig 

6. sæti 30 stig/ 7.sæti 25 stig/ 8. Sæti 20 stig /9. Sæti 15 stig/10. Sæti 10 stig