Skip to content

Nú styttist óðfluga í Áhugamannamót Íslands og Áhugamannamót Spretts. 21.-23.júlí á félagssvæði Spretts.

Undirbúningur er í fullum gangi og týnast styrktaraðilar í hús hver af öðrum. Veglegir vinningar verða í öllum greinum.

Skráningu lýkur 15.júlí. Lágmarks skráning í hvern flokk er 5 keppendur.

Nefndin áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki verður verður næg þátttaka.

Skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Allar fyrirspurnir og afskráningar fara fram í gegnum netfangið motanefnd@sprettarar.is

Allir keppendur á Áhugamannamóti Íslands og Tommy Hilfilger og Áhugamannamóti Spretts og bílabankans fá 20% afslátt af öllum vörum í Ástund fram að móti og meðan á mótinu stendur. Eina sem þarf að gera er að sýna fram á skráningu í Kappa „appinu“

Play styrkir fljúgandi 100.m skeið í 2. flokki á Áhugamannamóti Spretts.

Play mun gefa gjafabréf í þrjú efstu sætin. Nú er um að gera að skrá sig í fljúgandi skeið og fljúga á vit ævintýranna með Play.

Þátttökurétt á Áhugamannamóti Íslands hafa allir sem náð hafa 22 ára aldri á keppnisárinu og hafa ekki keppt í meistaraflokki í íþróttakeppni á síðastliðnum 5 árum.

Keppt verður í 1.flokki. Hér keppa knapar með meiri keppnisreynslu.

Keppt veðrur í: Tölt T3, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Slaktaumatölt T4, Gæðingaskeið PP1, Fjórgangur V5, Tölt T7 einnig verður keppt í Gæðingakeppni, A og B flokki.

Áhugamannamót Spretts og Bílabankans.

Keppt verður í 2. flokkiHér keppa knapar með minni keppnisreynslu .

Keppt verður í : Tölt T3, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Slaktaumatölt T4, Fjórgangur V5, Tölt T7.

Keppt verður í 3. flokki Hér keppa knapar sem er byrjendur í keppni, fólk sem hefur td eingöngu keppt á vetrarleikum eða minni mótum.

Keppt verður í : Tölt T7 og Fjórgangur V5

Við bendum keppendum á nýjar reglur varðandi beislabúnað í keppni https://www.lhhestar.is/is/frettir/hvad-ma-eiginlega