Skip to content

1. deildin í Spretti

Í kvöld var undirritaður samstarfssamningur milli Hestmannafélagsins  Spretts og 1. Deildar vegna mótaraðar 2025 sem mun fara fram í Samskipahöllinni.  Formaður 1. Deildarinnar,  Sigurður Halldór Örnólfsson og formaður Spretts Jónína Björk Vilhjálmsdóttir undirrituð samninginn en viðstaddir voru Sigurbjörn Eiríksson, Sigurbjörn Þórmundsson og Garðar Hólm

    „Vel tókst til í fyrra þegar 1 Deildin var sett af stað og Spretturum hlakkar til að hafa deildina aftur í húsinu hjá okkur í vetur. Höllin okkar er í toppstandi, nýtt gólf og allt til alls. Sprettur mun taka vel á móti bæði knöpum og hestum“ segir Jónína formaður Spretts.

    “Framundan er spennandi keppnistímabil hjá 1.deildinni og fjölmargir nýjir keppendur eru skráðir til leiks” segir Sigurður formaður 1.deildar

    Á myndinni eru fá vinstri til hægri:
    Sigurbjörn Þórmundsson, Sigurður Halldór Örnólfsson, Jónína Björk Vilhjálmsdóttir og Sigurbjörn Eiríksson.

    Ljósmyndari: Garðar Hólm