Reiðhallir
Reiðhöllin Hattavellir
Umgengnis og umferðarreglur í reiðhöllum Spretts.
1.Einungis skuldlausir félagar geta fengið aðgangslykla. Börn yngri en 14.ára skulu vera í fylgd með forráðamanni. Handhafar aðgangslykla er óheimilt að hleypa öðrum inn í höllina
2.KNÖPUM BER AÐ HREINSA UPP EFTIR HESTANA SÍNA. Knapar skulu sýna kurteisi og tillitssemi og forðast óróa eða hávaða.
- Hjálmaskylda er í reiðhöllum Spretts. Við þjálfun hesta í reiðhöllum Spretts eru félagsmenn á eigin ábyrgð.
- Farið á bak og af baki inni á miðjum vellinum en ekki á reiðleiðum í útjaðri vallar.
- Hægri umferð gildir þegar knapar mætast úr gagnstæðri átt ef riðinn er sami hraði. Fetgangur skal riðinn á innri sporaslóð þegar aðrir knapar ríða á hraðari gangtegund á ytri sporaslóð.
- Ekki má ríða hlið við hlið eða hafa tvo hesta til reiðar þegar aðrir eru í salnum.
- Forðast skal að ríða þvert í veg fyrir aðra knapa. Ekki má stöðva hestinn á ystu sporaslóð.
- Knapi sem ríður bauga, á hringnum, eða aðrar reiðleiðir inni á velli veitir þeim forgang sem ríða allan völlinn á sporaslóð. Aðrir skulu forðast að ríða þvert í gegn hjá þeim sem ríður á baug.
- Stökkþjálfun/yfirferðareið er óheimil þegar margir eru inni í höllinni í opnum tímum, sérstaklega ef einungis eitt hólf er opið í Samskipahöllinni fyrir félagsmenn til þjálfunar, eða ef margir eru inni í Húsasmiðjuhöllinni sá/sú sem ætlar að þjálfa stökk/yfirferð skal sýna sértakt tillit og skal gæta þess að ríða ekki á aðra hesta og knapa
- Reiðkennsla eða þjálfun liða er bönnuð í opnum tímum í reiðhöllum Spretts. Bóka þarf hólf og eða höll fyrirfram hjá framkvæmdastjóra sprettur@sprettarar.is eða í síma 620-4500
- Setji notendur og eða kennarar upp staura og bönd, keilur, brokkspírur eða annan búnað til þjálfunar ber viðkomandi að ganga frá að notkun lokinni.
- Virða skal þá tíma sem skráðir eru á dagatöl reiðhallanna.
- Ekki má hafa lausa hesta á vellinum meðan á reiðþjálfun stendur né binda hesta þar inni. Hringgerðin eru ekki til þess að geyma hesta í.
- Allar reykingar eru bannaðar. Meðferð áfengis og annara vímuefna er bönnuð. Fólki undir áhrifum áfengis eða vímuefna ber að vísa úr húsinu umsvifalaust.
- Lausaganga hunda er bönnuð.
Brot á reglum þessum getur þýtt lokun á reiðhallarlyklum í hallirnar
Reiðhallarlyklar
Til þess að fá lykil eða láta virkja lykil þá er best að senda póst á sprettur@sprettarar.is með upplýsingum um til hversu langs tíma lykilinn á að vera opinn og hver sé skráður fyrir honum. Eða hringja í síma 620-4500
Allir notendur þurfa að vera skráðir fyrir lykli og vera skráðir í hestamannafélagið Sprett.
Við minnum alla á að hver lykill gildir eingöngu fyrir þann/þau sem eru skráð fyrir lyklinum.
Almennur-lykill opinn virka daga frá kl 6:15 -8:30 og frá kl. 12-23:50 um helgar frá 6:15-23:50
Fjölskyldu-lykill opinn virka daga frá kl 6:15 -8:30 og frá kl. 12-23:50 um helgar frá 6:15-23:50
Tamningamanna-lykill verður opinn 6:15-23:50 alla daga.
Almennur-lykill er fyrir einstakling ekki fyrir maka/sambýling eða börn viðkomandi eldri en 18 ára og ekki er leyfilegt að þeir/þær sem eru saman í hesthúsi noti eingöngu einn lykil.
Fjölskyldu/para-lykill sem gildir fyrir hjón/pör og börn þeirra undir 18 ára aldri.
Tamningamanna-lykill er fyrir fólk sem stundar tamningar og þjálfun hrossa og fólk sem vill nýta sér hallirnar alla daga.
Verð fyrir lykla.
Almennur lykill: 1-3 mánuðir 3000kr pr mánuð
Almennur lykill: 3+mánuðir 2000kr pr mánuð
Fjölskyldulykill 1-3 máuðir 5000kr pr mánuð
Fjölskyldulykill 3+mánuðir 4000kr pr mánuð
Tamningamannalykill 20.000kr pr mánuð.
Ef að fólk vill leigja eitt bil í Samskipahöllnni eða leigja Húsasmiðjuhöllina þá er best að hafa samband í gegnum sprettur@sprettarar.is
Ein klukkustund í einu hólfi í Samskipahöllinni eða Húsasmiðjuhöllin kostar 7000kr.
Ein klukkustund í allri Samskipahöllinni kostar 21000kr
Ef fólk ætlar að fá til sín kennara í einkatíma verður fólk að leigja sér pláss óheimilt er að vera með reiðkennara með sér á opnum almennum tíma reiðhallanna.