Reiðhallarlyklar og verð
UMGENGNIS- & UMFERÐARREGLUR Í REIÐHÖLLUM SPRETTS
- Einungis skuldlausir félagar geta fengið aðgangslykla. Börn yngri en 12 ára skulu vera í fylgd með forráðamanni. Handhafar aðgangslykla er óheimilt að hleypa öðrum inn í höllina.
- Knöpum ber að hreinsa upp eftir hesta sína. Knapar skulu sýna kurteisi og tillitssemi og forðast óróa eða hávaða.
- Hjálmaskylda er í reiðhöllum Spretts. Við þjálfun hesta í reiðhöllum Spretts eru félagsmenn á eigin ábyrgð.
- Farið á bak og af baki inni á miðjum vellinum en ekki á reiðleiðum í útjaðri vallar.
- Hægri umferð gildir þegar knapar mætast úr gagnstæðri átt ef riðinn er sami hraði. Fetgangur skal riðinn á innri sporaslóð þegar aðrir knapar ríða á hraðari gangtegund á ytri sporaslóð.
- Ekki má ríða hlið við hlið eða hafa tvo hesta til reiðar þegar aðrir eru í salnum.
- Forðast skal að ríða þvert í veg fyrir aðra knapa. Ekki má stöðva hestinn á ystu sporaslóð.
- Knapi sem ríður bauga, á hringnum, eða aðrar reiðleiðir inni á velli veitir þeim forgang sem ríða allan völlinn á sporaslóð. Aðrir skulu forðast að ríða þvert í gegn hjá þeim sem ríður á baug.
- Stökkþjálfun/yfirferðareið er óheimil þegar margir eru inni í höllinni í opnum tímum, sérstaklega ef einungis eitt hólf er opið í Samskipahöllinni fyrir félagsmenn til þjálfunar, eða ef margir eru inni í Húsasmiðjuhöllinni sá/sú sem ætlar að þjálfa stökk/yfirferð skal sýna sértakt tillit og skal gæta þess að ríða ekki á aðra hesta og knapa
- Reiðkennsla eða þjálfun liða er bönnuð í opnum tímum í reiðhöllum Spretts. Bóka þarf hólf og eða höll fyrirfram hjá [email protected] eða í síma 620-4500
- Setji notendur og eða kennarar upp staura og bönd, keilur, brokkspírur eða annan búnað til þjálfunar ber viðkomandi að ganga frá að notkun lokinni.
- Virða skal þá tíma sem skráðir eru á dagatöl reiðhallanna.
- Ekki má hafa lausa hesta á vellinum meðan á reiðþjálfun stendur né binda hesta þar inni. Hringgerðin eru ekki til þess að geyma hesta í.
- Allar reykingar eru bannaðar. Meðferð áfengis og annara vímuefna er bönnuð. Fólki undir áhrifum áfengis eða vímuefna ber að vísa úr húsinu umsvifalaust.
- Lausaganga hunda er bönnuð.
Brot á reglum þessum getur þýtt lokun á reiðhallarlyklum í hallirnar
REIÐHALLARLYKLAR
Til þess að fá lykil eða láta virkja lykil þá er best að senda póst á [email protected] með upplýsingum um nafn, kennitölu og hvaða áskrift/tímalengt verið er að panta. Allir notendur þurfa að vera skráðir fyrir sínum lykli, vera skráðir félagsmenn og skuldlausir við hestamannafélagið Sprett.
Lágmarksáskrift á reiðhallarlykli eru 3 mánuðir.
Almennur reiðhallalykill er opinn virka daga frá klukkan 6:15 -8:30 og frá kl. 12-23:50 um helgar frá 6:15-23:50
Árs reiðhallarlykill verður opinn 6:15-23:50 alla daga.
Ekki er leyfilegt að þeir/þær sem eru saman í hesthúsi noti eingöngu einn lykil nema þegar um er að ræða fjölskyldulykil. Fjölskyldulykill gildir fyrir hjón/pör og börn þeirra undir 18 ára aldri.
Verð fyrir lykla veturinn 2024-2025
Stofngjald fyrir hvern útgefin reiðhallarlykil er 5.000kr.
Lykill: 3 mánuðir 12.000kr
Lykill: 6 mánuðir 20.000kr
Árslykilll: 12 mánuðir 26.000kr
Fjölskyldulykill af árslykli: 12 mánuðir 40.000kr (aðeins er um að ræða einn lykil)
Bókun á reiðhöllum Spretts
Bókanir á einkatímum í reiðhöllum Spretts fer fram í gegnum pósthólfið [email protected]
Í boði er að bóka lausa tíma:
Öll Húsasmiðjuhöll
Eitt hólf í Samskipahöll
Alla Samskipahöllina virka daga milli kl.6-9 á morgnanna og milli kl.22-00 á kvöldin
Alla Samskipahöllina um helgar milli kl.6-9 á morgnanna og kl.20-00 á kvöldin
Hægt er að bóka í lágmark klukkustund alla Samskipahölllin en Húsasmiðjuhöll og hólf í Samskipahöll í hálftíma.
Ein klukkustund í einu hólfi í Samskipahöllinni kostar 8.000 kr.
Ein klukkustund í allri Húsasmiðjuhöllinni kostar 10.000 kr.
Ein klukkustund í allri Samskipahöllinni kostar 30.000 kr
Ofangreind verð eiga einungis við fyrir hestatengda viðburði. Ef fólk ætlar að fá til sín kennara í einkatíma verður fólk að leigja sér pláss óheimilt er að vera með reiðkennara með sér á opnum almennum tíma reiðhallanna.